miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Hellaskoðun og vinstripólitík ...

Seinast þegar við blogguðum vorum við enn stödd á eyjunni Margaritu og á leið til Cumaná, 300.000 manna hafnaborgar austarlega í Venezúela. Leigubílstjórinn, sem skutlaði okkur niður á höfn, var afar málglaður, og ullu upp úr honum bæði spurningar um okkur og svo alls konar forvitnilegar upplýsingar um Venezúela og eyjuna (merkilegt hvað leigubílstjórarnir hafa reynst miklar upplýsingaveitur í þessari ferð). Hann varaði okkur meðal annars við Cumaná og sagði okkur t.d. að taka alltaf merktan leigubíl frá e-u leigubílafyrirtæki (sem við höfðum svo sem alltaf reynt). Þegar til Cumaná var komið varð okkur því ekki um sel þar sem nánast engir leigubílar voru niðri við höfn. Eftir töluvert þóf náðum við þó leigubíl með skuggalegum bílstjóra sem ók af stað um auðar götur borgarinnar. Þegar á Hotel Astoria var komið lofuðum við sjálfum okkur að leggja aldrei aftur í slíka leigubílaför.

Hótel Astoria var nú töluvert betra en hótelómyndin í Puerto la Cruz og eftir ágætisnótt drifum við okkur á rútustöð borgarinnar enda var förinni heitið suður til smábæjarins Caripe upp í fjöllum Venezúela. Cumaná, sem fékk fljótlega viðurnefnið karókíborgin vegna óhóflegrar karókísöngmennsku borgarbúa, var heldur óspennandi og okkur langaði ekki til að dvelja þar lengur en nauðsynlegt þótti. Á rútustöðinni komumst við hins vegar að því að engin rúta færi til Caripe heldur þyrftum við annað hvort að taka leigubíl eða "por puesto", "safnbíl" svokallaðan, sem leggur ekki af stað fyrr en búið er að fylla hann af farþegum. Þar sem við vissum ekki hvort það væri nokkur por puesto á leið til Caripe ákváðum við að drífa okkur með leigubíl (sem kostaði ekki nema um 2700 krónur þótt ferðin tæki um tvo og hálfan tíma). Leigubílstjórinn virkaði fínn en ekki var langt liðið á ferðina þegar okkur var farið að líða eins og í rallýakstri. Vegurinn hlykkjaðist um skóglendi og voru blindbeygjur nánast alla leið og þóttumst við heppin að vera yfirleitt heil á húfi þegar á leiðarenda var komið (jæja, smáýkjur ...).

Í Caripe var hins vegar gott að vera. Loftslagið eins og á heitum íslenskum sumardegi með svölum þægilegum kvöldum, öfugt við afganginn af landinu, sem mér hefur þótt helst til heitur. Elín Lóa kann betur við hitann en ég. Við gistum eina nótt á hinu fína Hotel Samán og morguninn eftir vöknuðum við snemma til að skoða hellinn Cueva Del Guacharo. Cueva del Guacharo er thridji lengsti hellir Venezúela, um 10 og hálfur kílómetri á lengd en adeins um 1200 metrar eru adgengilegir fyrir ferdamenn. Hellirinn er thekktastur fyrir hinn undarlega guacharo-fugl, eda olíufugl eins og hann er nefndur á ensku (aetli hann hafi sérstakt nafn á íslensku, annad en thýdingu á enska nafninu?). Fuglinn lifir alla sína aevi í hellinum og kemur adeins út ad nóttu til ad afla sér matar. Ofugt vid t.d. ledurblokur er guacharo hins vegar ávaxtaaeta og tar sem faeduoflunin reynir mjog á fuglinn naerist hann helst ekki oftar en med thriggja til fjogurra vikna millibili og fer thá ekkert út úr hellinum utan thess. Eins og gera má rád fyrir reyndist ferdin inn í hellinn einstok og skemmdi thar ekki fyrir hversu skemmtilegur leidsogumadurinn okkar var.

Í hellisskoduninni hittum vid Ísraela nokkurn, Matan ad nafni, og ákvádum ad slást í for med honum enda reyndist hann hinn áhugaverdasti ferdafélagi. Hann hafdi verid á social forum í Caracas (alltaf gaman ad tala vid komma) og aetladi ad heimsaekja vinafólk sitt í borginni Ciudad Guayana. Thar sem vid aetludum til Ciudad Bolivar og Guayana er í leidinni hentadi thad okkur ágaetlega ad ferdast saman til ad spara peninga. Okkur hafdi verid tjád ad vegurinn á milli Caripe og naestu stóru borgar, Maturín, vaeri lokadur vegna mótmaeala og thurftum vid thví ad taka "por puesto" lengri leid til ad komast fram hjá lokuninni.

Thann dag, 13. febrúar, komumst vid sídan mun lengra en vid hofdum búist vid eda alla leid til Ciudad Bolivar. Vegurinn var ekkert sérstakur en ekkert verri svo sem en thad sem vid hofum lent í sídan thá eda eigum eftir ad lenda í sídar, býst ég vid. Thegar vid logdum af stad í Caripe bádum vid bílstjórann um ad stoppa svo vid gaetum fengid okkur hádegismat. Hann stoppadi thví vid fyrstu vegasjoppu og thar fengum vid ólseigt kjot og maískokur af grilli, sem er án efa magnadasti skyndibiti, sem ég hef smakkad.

Í Ciudad Bolivar gistum vid tvaer naetur og lentum í ýmsum aevintýrum. Theim verdum vid hins vegar ad segja frá sídar thegar tími gefst. Núna erum vid hins vegar komin til Manaus í Brasilíu (eftir 29 tíma rútuferdalag frá Venezúela!) og í fyrramálid holdum vid af stad inn í frumskóga Amazon. Thadan munum vid ekki eiga afturkvaemt fyrr en ad sex dogum lidnum.

23 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er nú ekkert að smá rallakstri!!!

18/2/06 10:22  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá! Djö... er þetta magnaður leiðangur hjá ykkur! Velkomin til suðurhvelsins...

Smá kvót:

Bart, water will only go the other way in the Southern hemisphere.
Bart: What the hell is the "Southern hemisphere"?
Lisa: [sighs] Haven't you ever looked at your globe?
[said globe is still wrapped for Bart's birthday from Abe]
Lisa: [pointing] See, the Southern hemisphere is made up of everything
below the equa --
[stops, sees Bart looking blankly]
-- this line.
Bart: Hmm. [spins globe] So down there in, say,
Argentina, or...[reads logo] Rand McNally, all their
water runs backwards?
Lisa: Uh huh. In fact, in Rand McNally, they wear hats on
their feet and hamburgers eat people.
Bart: Cool!

18/2/06 12:43  
Blogger Anna said...

Ég fæ bara gæsahúð af spenningi við að lesa bloggið ykkar. Öll þessi ævintýri!
Passið ykkur nú vel í Amazon.. ekki týna gædinum, plís.

18/2/06 18:52  
Blogger marta said...

Gaman að lesa fréttir fra ykkur.
Hafið það svaka gott :)
Hilsen sMarta

19/2/06 23:34  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ, Anna nei! Ég fékk alveg ógeðslega kaldann og óþægilegan hroll þegar þú mynntist á gædinn. Þetta var kríbí saga sem þið krakkar hafið vonandi hlustað veeel á! Haldið bara í hendina á honum, bindið ykkur öll saman í halarófu eða eitthvað, bara ekki týna honum!!!

20/2/06 14:01  
Blogger Sigurjón said...

AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA!

24/2/06 18:21  
Blogger Una said...

Heyriði nú mig, ekki afturkvæmt fyrr en ad 6 dögum liðnum segið þið. Nú eru komnir 10 dagar og ekkert heyrst frá ykkur? Eruð þið týnd í Amazon frumskógunum?

25/2/06 20:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Shit, góður punktur Una... :s
Nema að þetta hafi verið þau sem voru að stela þarna málverkunum í Rio.

26/2/06 15:59  
Blogger Sigurjón said...

Já. Þetta er náttúrulega algjör fantaskapur að láta ekki vita af sér! Nema þið séuð nú bara týnd....

26/2/06 19:54  
Anonymous Nafnlaus said...

Krakkar ekki segja þetta!! :(
-Steinunn

26/2/06 22:22  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég sé þau alveg í anda hlaupa eins og bavíanar með málverkin undir hendinni ;D Þau lugu bara að okkur og fóru aldrei inn í frumskóginn. Tilgangur ferðarinnar hefur alltaf verið að komast yfir þessi málverk en ekki að ferðast um S-Ameríku. Við bjánar að fatta það ekki ;)

27/2/06 12:23  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst ég hafa verið notaður :(

27/2/06 12:44  
Anonymous Nafnlaus said...

Þau létu vita af sér um helgina. Eru á leið til Ríó!

27/2/06 15:27  
Anonymous Nafnlaus said...

Eru engar myndir? Ef ykkur vantar stafræna myndavél er raftækjamarkaður í Paragvæ sem selur þýfi. Myndavél og Ipod á þúsund kall!

28/2/06 00:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Hjúkk!! Mér var hætt að vera sama. Hlakka til að heyra frá ykkur aftur E-Ló og Snabbi;) -Steinunn

1/3/06 10:09  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir kveðjuna Elló:) Var þetta tvær frá þér eða ein frá þér og svo skammir frá Snæbirni? Allavega, hlakka til að heyra frá ykkur næst.
-Steinunn

1/3/06 22:56  
Anonymous Nafnlaus said...

Eg sendi 3 og svo snaebjorn med 1 skammir:)

:p

2/3/06 18:42  
Anonymous Nafnlaus said...

Hehe ok skil:) Ég tek þá þessu þannig að Elló hafi sent 3kveðjur og Snabbi bara eina;) hehe djók. Gaman að heyra frá ykkur, hlakka til að fá að vita meira í ferðasögunni;)
-Steinunn

3/3/06 13:38  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvaða kveðjur? Eru einhverjar sögur?

Mér finnst ég einmanna....Enginn Elín Lóa, sniff, sniff...

3/3/06 22:22  
Anonymous Nafnlaus said...

Skemmtilegar frásagnir. Gangi ykkur allt í haginn.

5/3/06 11:00  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég var samt að grínast með kveðjuna E-Ló! En takk fyrir mig:) Þú ert svo sæt ;) Lundi og Snæbjörn líka!

6/3/06 08:28  
Anonymous Nafnlaus said...

Dúddú rúddú rú....

7/3/06 09:12  
Blogger Erna Blöndal said...

Ótrúlega gaman að heyra frá ykkur! Öfunda ykkur ofaní dýpstu hjartaþræði.. :)
Skemmtið ykkur vel!

8/3/06 15:23  

Skrifa ummæli

<< Home